Hoppa beint í aðalinnihald
Augnlæknar Reykjavíkur
Fræðsla

Leiðbeiningar vegna hefðbundinna augnlokaaðgerða

LEIÐBEININGAR TIL SJÚKLINGA

Aðgerðin er gerð í Handlæknastöðinni, Glæsibæ.

Þetta er stóra byggingin, gengið er inn í húsið að austanverðu og er Handlæknastöðin á 4. hæð.

Yfirleitt er aðgerðin gerð í staðdeyfingu. Sjúklingur skal taka lyfin sín að morgni aðgerðardagsdags með litlu vatni, jafnvel þótt um svæfingu sé að ræða. Ef sjúklingurinn er að taka inn blóðþynningarlyf (t.d. Hjartamagnyl eða Kovar) þá er stundum ráðlegt að hætta töku þess einni viku fyrir aðgerð, það skal þó alltaf gert í samráði við lækni.

Í lok aðgerðar er stundum settur leppur fyrir augað. Sjúklingi er því ráðlagt að keyra ekki að lokinni aðgerð. Þessar umbúðir eru hafðar yfir auganu í 24-48 klst.

Augnsmyrsli eða dropar (til að koma í veg fyrir sýkingu) þarf yfirleitt að setja í augað daglega eftir að leppurinn hefur verið fjarlægður eða samdægurs ef enginn er leppurinn. Lyfið er sent rafrænt og getur sjúklingur farið í hvaða apótek sem er eftir aðgerðina og nefnt kennitöluna sína. Samfara er gott að nota ísbakstra (kæligel poka) eins mikið og þolist fyrstu dagana eftir aðgerð. Það dregur úr bólgu, sem ætíð fylgir skurðaðgerðum, minnkar verki og hættu á blæðingu.

Saumataka er á stofu hjá Haraldi Sigurðssyni, Hamrahlíð 17, á miðvikudegi eftir aðgerð.

Upplýsingar: Svana 6994953 eða e-mail: haraldur@handlaeknastodin.is