Um okkur
Sérfræðingar með áratuga reynslu í augnlækningum
Augnlæknar Reykjavíkur sinna öllum almennum augnlækningum. Hjá okkur starfa sérfræðingar með áratuga reynslu í augnlækningum. Augnlæknar stöðvarinnar hafa sótt sérfræðimenntun sína til Svíþjóðar, Noregs, Bretlands, Skotlands og Bandaríkjanna.
Sérfræðinámið tekur að jafnaði 4 til 6 ár og með aukinni tækni og þekkingu hafa orðið til ýmsar undirsérgreinar. Hefur það verið mikill styrkur fyrir fagið og stöðina okkar hversu fjölbreytta menntun augnlæknar okkar hafa sótt sér. Einnig hafa góð tengsl þeirra við ýmsa erlenda háskóla verið fræðigreininni og sjúklingum til hagsbóta.
Sjúklingar okkar eru á öllum aldri, ungir jafnt sem aldnir.
Við stöðina starfa 12 sérmenntaðir augnlæknar sem eru sérhæfðir í öllum helstu undirsérgreinum augnlæknisfræði, t.a.m. barnaaugnlækningum, sjónhimnu og augnbotnasjúkdómum, hornhimnusjúkdómum, glákusjúkdómum, augnskurðlækningum, augnlokaaðgerðum og laserlækningum.
Saga okkar
Landakotsspítali tók til starfa í október 1902, en þá var augnlæknum veitt aðstaða fyrir sjúklinga sína þar. Það var þó ekki fyrr en árið 1969 að formleg augndeild var loks stofnuð á Landakoti.
Í september 1973 tók göngudeild augndeildar til starfa á neðri hæð Öldugötu 17. Landakotsspítali var sameinaður Landspítala 1996. Um aldamótin 2000 flutti augndeildin á Landspítala Háskólasjúkrahús. Í kjölfarið tóku sérfræðingar deildarinnar yfir starfsemi Öldugötu 17.
Árið 2004 flutti stofan frá Öldugötu 17 í Hamrahlíð 17 og var nafninu þá breytt í Augnlæknar Reykjavíkur. Nýir sérfræðingar hafa bæst í hópinn og aðrir hafa helst úr lestinni á þessum árum.
Á Íslandi hófust lækningar með leysigeislum á Göngudeild Augndeildar 1980 en nú hafa Augnlæknar Reykjavíkur yfir að ráða lasertækjum af fullkomnustu gerð sem mest notuð við meðferð á gláku og augnbotnasjúkdómum.
Á Göngudeildinni fóru fram miklar rannsóknir á helstu augnsjúkdómum á Íslandi um áratuga skeið og voru niðurstöður birtar í hátt metnum alþjóðlegum fræðiritum. Sú starfsemi hefur haldið áfram í Hamrahlíð 17 og hefur hún verið styrkt af innlendum og alþjóðlegum vísindasjóðum.
Í desember 2005 fluttist starfsemi Augnlækna Reykjavíkur, í ný glæsileg húsakynni, á 5. hæð í Hamrahlíð 17. Þar fer afar vel um lækna, starfsmenn og skjólstæðinga.