Aðgerðir vegna umframhúðar á augnlokum
LEIÐBEININGAR TIL SJÚKLINGA
Aðgerðin er gerð í Handlæknastöðinni, Glæsibæ.
Þetta er stóra byggingin, gengið er inn í húsið að austanverðu og er Handlæknastöðin á 4. hæð.
Yfirleitt er aðgerðin gerð í staðdeyfingu. Samfara eru gefin róandi og verkjastillandi lyf. Sjúklingur skal vera fastandi en taka þó lyfin sín að morgni aðgerðardagsdags með litlu vatni. Ef sjúklingurinn er að taka inn blóðþynningarlyf (t.d. Hjartamagnyl eða Kovar) þá er oftast ráðlegt að hætta töku þess einni viku fyrir aðgerð.
Í lok aðgerðar eru settir ísbakstrar á bæði augnsvæði til að minnka bólgu- og blæðingarhættu. Sjúklingi er ráðlagt að nota kælibakstra eins mikið og þolist aðgerðardag og síðan áfram næstu daga. Umbúðir fylgja sjúklingi heim, þær á að setja yfir augun fyrstu nóttina og fjarlægja að morgni. Það er nauðsynlegt að einhver komi og nái í sjúkling.
Augnsmyrsli eða dropar (til að koma í veg fyrir sýkingu) á að setja í augað daglega eftir að leppurinn hefur verið fjarlægður. Lyfið er sent rafrænt og getur sjúklingur farið í hvaða apótek sem er eftir aðgerðina og nefnt kennitöluna sína. Ítrekað skal að gott er að nota ísbakstra (kæligel poka) eins mikið og þolist fyrstu dagana eftir aðgerð.
Kæling eftir aðgerð
- 30 - 45 min x 2 (bæði settin)
- Hvíla síðan í 2 - 2.5 klst
- Endurtaka í 3 daga, síðan eftir þörfum fram að saumatöku
Athugið
- Ef farið er í sturtu má ekki láta vatn leka yfir andlitið
- Lyfseðill verður sendur rafrænt í apótek, daginn fyrir aðgerð
Komi upp vandamál og ekki náist í skurðlækninn, þá skal minnt á sólarhringsvakt augnlækna á Augndeild Landspítala, Hringbraut.
Saumataka er á stofu hjá Haraldi Sigurðssyni, Hamrahlíð 17, á miðvikudegi eftir aðgerð.
Upplýsingar: Svana 6994953 eða e-mail: haraldur@handlaeknastodin.is