Hoppa beint í aðalinnihald
Augnlæknar Reykjavíkur
Fræðsla

Gríðarlegar breytingar á síðustu öld

Fyrsti íslenski læknirinn sem sérmenntaði sig í augnlækningum var Björn Ólafsson en hann lauk prófi frá Læknaskólanum 1888 og stundaði framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1889–90.

Landakotsspítalinn tók til starfa í október 1902. Það var þó ekki fyrr en árið 1969 að formleg augndeild var loks stofnuð á Landakoti.

Augnlæknafélag Íslands var stofnað árið 1966. Í dag eru um 30 starfandi augnlæknar á Íslandi. Þeir hafa sótt sérfræðimenntun sína til Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur, Englands, Skotlands, Þýskalands og Bandaríkjanna.

Gríðarlegar framfarir í augnlækningum og blindutíðni snarminnkað

Á síðustu áratugum hafa orðið gríðarlegar framfarir í augnlækningum. Um miðja síðustu öld var algengi blindu á Íslandi mun hærra en í Evrópu og Norður-Ameríku. Blinda af völdum hægfara gláku var langalgengasta orsökin hér og mun tíðari en í nágrannalöndum. Á okkar tímum hefur blindutíðni vegna gláku snarminnkað með aukinni þjónustu, öflugum lyfjum og flóknum skurðaðgerðum.

Brautryjendastarf á heimsvísu

  • Árið 1980 hófst skimun við augnsjúkdómum í sykursýki á Íslandi og var Ísland meðal fyrstu landa í heiminum til að koma á miðlægu, skipulögðu skimunarkerfi þar sem allir einstaklingar með sykursýki (bæði tegund 1 og tegund 2) voru kallaðir reglulega inn í augnbotnamyndatöku og skoðun.
  • Hrap í blindutíðni: Áður en skimunin hófst var sykursýki ein helsta orsök blindu hjá fólki á vinnualdri. Eftir að skimun og snemmbær leysigeislameðferð (laser) hófust snarlækkaði tíðni lögblindu af völdum sykursýki á Íslandi um meira en 80–90% og varð sú lægsta sem mældist í heiminum.
  • Alþjóðleg fyrirmynd: Þetta íslenska forvarnamódel vakti heimsathygli og hefur margsinnis verið birt í virtum erlendum læknatímaritum (t.d. The Lancet og British Journal of Ophthalmology), og varð að fyrirmynd fyrir sambærileg skimunarverkefni víða um lönd, til dæmis í Bretlandi og á Norðurlöndunum.
  • Snemmgreining skiptir öllu: Galdurinn liggur í því að sykursýkisbreytingar í augnbotnum (diabetic retinopathy) valda engum einkennum á fyrstu stigum. Með reglulegum myndatökum er hægt að grípa inn í með leysimeðferð eða lyfjainnsprautunum áður en óafturkræfur skaði eða blæðing verður í sjónhimnunni.

Þetta sýnir svart á hvítu hversu ótrúlegu máli markvisst forvarnastarf og reglubundið eftirlit geta skipt fyrir lífsgæði fólks.

Framfarir í augasteinaaðerðum

Algengasta skurðaðgerðin á auga er augasteinaaðgerð/dreraðgerð (cataract-aðgerð). Skurðaðgerð þar sem skýjuð og ógegnsæ augnlinsa (drer eða augasteinn) er fjarlægð og gervilinsa sett í staðinn til að endurheimta skýra sjón.

Fyrstu dreraðgerðina á Íslandi gerði Björn Ólafsson árið 1892 við afar frumstæðar aðstæður í heimahúsi. Um miðja síðustu öld var augasteinninn fjarlægður í heilu lagi gegnum 10–12 mm skurð og sjúklingar voru inniliggjandi í 7–10 daga.

Í dag fer dreraðgerð fram í gegnum 2,5–3,0 mm skurð og sjúklingar eru útskrifaðir heim einni klukkustund eftir aðgerð.

Við hjá Augnlæknum Reykjavíkur opnuðum hátækni skurðstofu í maí 2026. Þar eru augasteinaaðgerðir eru framkvæmdar undir merkjum Lentis. Nánari upplýsingar á lentis.is.